avatar

#30 Aldís Gunnarsdóttir - Gagnfræðiskólinn í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar - mannlíf og saga
Vestmannaeyjar - mannlíf og saga
Episode • Sep 23, 2021 • 2h 33m

Þrítugasti þáttur er aðeins heimilislegri að þessu sinni. Þar sem ég heimsótti Aldísi Gunnarsdóttur og tók viðtalið upp á fallega heimili fjölskyldu hennar í Garðabæ. Og þar sem að ég er stödd í höfuðborginni, þá tók ég upp kynningarorðin og sögubrotið heima hjá frænku minni í Mosfellsbæ, þar sem ég er umkringd 3 yndislegum hundum. þú mátt því eiga von á að heyra smá í litlum loppum og örlitlar hrotur frá Jasmín minni. Ég vona að það trufli ekki við hlustunina á þættinum.

En að þætti vikunnar.

Í þrítugasta þætti er rætt við Aldísi Gunnarsdóttur um líf hennar og störf. Aldís ræðir við okkur um líf sitt, námið, myndlistina, hvernig var að búa í Noregi, ferðina sem hún fór á Víkingaskipinu Gaia og margt fleira.

Í seinni hluta þáttarins heyrum við stutta samantekt um sögu Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Þetta sögubrot er unnið úr heimildum á Heimaslóð.is Fív.is og Úr Blik.

Switch to the Fountain App