Haukur Helgi Pálson Briem, leikmaður íslenska landsliðsins og Unics Kazan, var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Haukur var spurður út í þau kynslóðaskipti sem hafa verið að eiga sér stað í landsliðinu og hvernig honum lítist á framtíð liðsins.Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall í dag, þá hefur Haukur spilað meira en minna fyrir utan landsteina Íslands síðustu 12 ár. Haukur fer í þættinum í gegnum þennan fjölbreytta feril og segir sögur frá hverjum einasta stað sem hann var á, en meðal annarra liða sem Haukur hefur verið á mála hjá er Montverde akademían og Maryland háskólinn í Bandaríkjunum, nokkur lið í ACB á Spáni, deildir í Svíþjóð, Frakklandi og Rússlandi, sem og að sjálfsögðu árið sem hann tók með Njarðvík í Dominos deildinni.Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.Gestur: Haukur Helgi Pálsson BriemUmsjón: Davíð Eldur og Sigurður OrriDagskrá00:00 - Létt Hjal04:00 - Upphafið og Fjölnir12:00 - Montverde og Maryland24:00 - Sögur úr mennskunni - ACB, Þýskaland og Svíþjóð41:00 - Árið með Njarðvík48:00 - Þrjú ár í Frakklandi55:00 - Barist við birni í vestur Rússlandi og boð í Summer League01:17:00 - Líf atvinnumannsins01:29:00 - Vonlaus áhrifavaldur01:31:00 - Besta lið sem Haukur hefur spilað með01:37:00 - Þróun landsliðsins síðustu ár og framtíðin01:53:00 - Hvert er Haukur að fara?01:58:00 - Lögreglumaðurinn Haukur Helgi02:02:00 - Hvern er erfiðast að dekka?02:05:00 - Draumalið samherja